
Veiðar göngusilungs eru heimilar frá 1. apríl til 10. október ár hvert,…
Lög um lax- og silungsveiði 61/2006
Vorveiði á sjóbirting í Vatnamótunum
Eins og flestir veiðimenn vita þá hófst veiði á sjóbirting (göngusilung) þann 1. apríl (Guði sé lof!). Við hittum nokkra hressa stráka sem voru á leiðinni í Vatnamótin í sjóbirting dagana 7. – 9. apríl og við nýttum tækifærið og fengum að vera í sambandi við þá með fréttir af veiðinni.
Þeir mættu á svæðið í sannkallaðri vorblíðu og voru strax komnir í fisk. Fyrsta vaktin hjá þeim var að þeirra sögn alveg geggjuð og greinilega mjög mikið af sjóbirting á svæðinu. Við heyrðum fyrst í Davíð Erni Albertssyni sem sendi okkur myndir og myndbönd eftir fyrstu vakt með þeim aflafréttum að hollið hafi náð um 40 fiskum á fyrstu vakt.

Við fengum svo senda mynd frá Ólafi Þóri Guðjónssyni sem hafði sett í og landað 85 cm dreka! Litla veislan sem það hefur verið svona í fyrsta túr ársins.

Við heyrðum svo aftur í strákunum í dag þegar þeir voru á leiðinni heim eftir algjört mok. Búið að vera æðislegur túr og mikið af fiski á svæðinu. Sú fluga sem var að gefa best var Dýrbítur í ýmsum útfærslum.
Svona fyrir forvitnissakir þá heyrðum við aðeins í Kristjáni Páli Rafnssyni hjá Fishpartners sem eru leigutakar að Vatnamótunum. Svæðið er uppselt núna í vor en hann sagði okkur að hingað til sé veiðin búin að vera svona – algjört mok! Hægt er að lesa meira um Vatnamótin með því að smella á þennan hlekk: https://fishpartner.is/veidisvaedi/vatnamot/
Á heimasíðu Fishpartner er svo hægt að skoða veiðisvæðin þeirra og ná sér í veiðileyfi þó við fyrstu sýn virðist öll sjóbirtingsveiði vera uppseld. Við minnum á samfélagsmiðlana okkar, Facebook og Instagram, þar sem við setjum inn vörur, veiðimyndir og fleira veiðitengt. Svo er alltaf heitt á könnunni hjá okkur í Mörkinni 6. Kíktu við og skoðaðu úrvalið.
Fleiri veiðimyndir úr Vatnamótum


