Vefverslun loksins komin í loftið

Eftir mikla undirbúningsvinnu er vefverslun Veiðivonar loksins komin í loftið. Þó ófullkomin sé ennþá. Við erum á fullu við að fínpússa vefverslunina, uppfæra vörur með myndum og lýsingu, setja inn stærðartöflur og bæta við vörum. En vefverslunin virkar og nú er hægt að versla hvenær sem er og hvar sem er og velja að láta senda heim, sækja á valda afhendingarstaði eða sækja í búðina til okkar.

Á meðan við erum að vinna í síðunni þá biðjum við viðskiptavini okkar að sýna okkur skilning og þolinmæði og við viljum endilega heyra skoðanir, endurgjöf og fá ábendingar um það sem við þurfum að laga. Betur sjá augu en auga. Hafið endilega samband við okkur í gegnum samfélagsmiðla á Facebook og Instagram, sendið okkur póst á veidivon@veidivon.is eða hringið í síma 568-7090.

Við erum að vinna í að setja inn allar þær flugur sem við bjóðum upp á frá Atlantic Flies en þar sem fluguúrvalið er risastórt þá mun það taka smá tíma. Sömu sögu er að segja um aukahluti eins og flotholt, öngla, sökkur og fleira. Úrvalið er enn sem komið er best í búðinni hjá okkur í Mörkinni en smátt og smátt bætist við úrvalið í vefversluninni.

Scroll to Top