Söluskilmálar
Almennt
Seljandi vöru er Veiðivon ehf og eiga þessir söluskilmálar við um tilboð, pantanir og kaup sem gerð eru hjá Veiðivon ehf. Sérstök frávik eru eingöngu gild með skriflegu samþykki Veiðivon ehf. Öll tilboð sem Veiðivon ehf gera að ósk viðskiptavina skal fara með sem trúnaðarmál. Öll samþykkt sölutilboð skulu vera samþykkt skriflega. Við samþykki tilboðs telst gengið að því og pöntun samþykkt. Öll tilboð eru gerð með fyrirvara um breytingar á gengisskráningu gjaldmiðla, innflutningsgjöldum, tollum, gjaldskrárhækkunum eða öðrum þáttum verðlags og miðast ætíð við gengi þess dags sem vara er reikningsfærð. Tilboðsverð eru því með fyrirvara um ofangreindar forsendur.
Afhending vöru
Pöntun telst fullkláruð þegar greiðsla hefur borist og varan er þá afhent viðskiptavini. Ef um reikningsviðskipti er að ræða þá gilda greiðsluskilmálar hvers viðskiptavinar fyrir sig.
Gallar og ábyrgð
Veiðivon ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem hlýst vegna galla eða bilunar vöru eða vegna notkunar á vörunni.
Sé vara gölluð ber Veiðivon að bjóða nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup. Veiðivon áskilur sér þann rétt að meta hvaða leið skal fara hverju sinni.
Greiðsluskilmálar
Allar vörur sem Veiðivon ehf selur eru seldar með eignarréttarfyrirvara. Veiðivon ehf heldur eignarrétti að hinu selda þar til andvirði þess er að fullu greitt. Skuldaviðurkenningar og greiðsla með ávísunum, greiðslukortum eða öðrum áþekkum greiðslumiðlum afnema ekki eignarréttinn fyrr en full skil hafa verið gerð. Komi til vanskila er Veiðivon ehf heimilt að taka hina seldu vöru til baka með eða án fyrirvara með aðstoð sýslumanns gerist þess þörf og skal andvirði þess sem þannig gengur aftur til Veiðivon ehf dragast frá skuld kaupanda þegar varan hefur verið endurseld að því marki sem að nemur endursöluverði að frádregnum kostnaði Veiðivon ehf.
Reikningar gjaldfalla á útgáfudegi. Viðskiptavinum ber að greiða reikning í samræmi við þá skilmála sem á honum eru tilgreindir. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu þeir ógreiddir á eindaga.
Skila- og skiptaréttur
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru frá Veiðivon ehf gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi þegar henni er skilað en einnig í upprunalegum, óskemmdum umbúðum. Við skil á vöru er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Persónuvernd
Veiðivon fer með allar upplýsingar kaupanda sem trúnaðargögn, engar persónuupplýsingar eru afhentar þriðja aðila nema þá í þeim tilgangi að ganga frá sölu og þjónustu við kaupanda.
Vafrakökur
Þessi vefsíða styðst við vafrakökur (e. cookies), til að bæta upplifun notenda. Þá eru vafrakökur notaðar til að greina umferð um vefinn, svo að við getum bætt notendaupplifunina á vefnum. Þessar vafrakökur eru einungis notaðar í tölfræðilegum tilgangi og notar Veiðivon þjónustur á borð við Google Analytics til að greina þessar upplýsingar. Ákveði notendur að neita þessum vafrakökum getum við ekki tryggt að upplifunin af vefnum verði sem skyldi.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi.