Við erum alltaf að fá eitthvað nýtt og við leggjum okkur fram að koma nýjum vörum hratt og örugglega inn í vefverslunina ásamt því að allar vörur eru fáanlegar í búðinni í Mörkinni 6. Núna vorum við að bæta inn bæði fluguhjólum og fluguveiðipökkum.
Loop Classic Tvíhenduhjól – Nýjir litir
Fyrst ber að nefna hrikalega flottar nýjar útgáfur af hinu gríðarlega vinsæla fluguhjóli, Loop Classic Reel. Hjólin eru byggð á sama gæðagrunni og önnur Classic Reel hjól þar sem tímalaus hönnun mætir nútíma verkfræði. The Colours of the Wild línan er ný túlkun á þeirri arfleifð. Hvert hjól er litað í djörfum, náttúrulegum lit, innblásin af náttúrunni og það er hvert öðru glæsilegra.
Hjólin heita mismunandi nöfnum eftir mismunandi lit en hér má sjá meira af hverju hjóli:
Loop Classic Tvíhenduhjól – Twilight

Twilight hjólið fæst fyrir línu 8-11 og er sett upp með hægri snúning.
Loop Classic Tvíhenduhjól – Aurora

Aurora hjólið er sett upp með vinstri snúning.
Loop Classic Tvíhenduhjól – Verdant

Verdant hjólið er sett upp með hægri snúning.
Fluguveiðipakkar frá Primal/FlyLab
Við vorum líka að fá tvo mismunandi fluguveiðipakka sem eiga það sameiginlegt að innihalda stöng frá Primal, hjól frá FlyLab, WF-flotlínu og undirlínu. Stangirnar eru frekar hraðar og henta vel fyrir byrjendur sem lengra komna en þessir pakkar eru á frábæru verði og hafa nánast allt sem þarf til að byrja. Hér fyrir neðan eru hlekkir á settin.
Conquest/Exo Fluguveiðisettið

Þetta sett samanstendur af Primal Conquest stönginni og FlyLab Exo fluguhjólinu. Stöngin er 9 fet og hægt er að velja um línuþyngd 5 eða 6. Conquest/Exo settið er á frábæru verði, aðeins 29.990 kr.
Revel/Acid Fluguveiðisettið

Þetta sett samanstendur af Primal Revel stönginni og FlyLab Acid fluguhjólinu. Stöngin er 9 fet og hægt er að velja um línuþyngd 5-8. Revel/Acid settið er líka á alveg geggjuðu verði aðeins 34.990 kr.
Skoðið úrvalið
Hægt er að skoða allt úrvalið af fluguveiðipökkum með því að smella HÉR
Hægt er að skoða allt úrvalið af tvíhenduhjólum með því að smella HÉR
