Ný lína fyrir silungsveiði frá Scientific Anglers – Trout Strategic

Ný lína var að lenda í búðinni hjá okkur frá Scientific Anglers (SA). Línan er í Amplitude Smooth flokknum frá SA og heitir því skemmtilega nafni Trout Strategic. Eins og nafnið gefur til kynna er hún sérstaklega hönnuð með púpu og þurrfluguveiði í huga en býður upp á alls konar notkunarmöguleika. Byrjum þessa umfjöllun á helstu punktunum um þessa línu fyrir þá sem vilja bara vita þetta helsta. Fyrir ykkur sem viljið virkilega kafa ofan í „fræðin“ þá förum við vel yfir tæknilega hlutann hér fyrir neðan.

  • Þrjár hauslengdir henta mismunandi getu og aðstæðum
  • Flotlína með öflugum fram“taper“ til að ráða vel við langa tauma
  • Hönnuð bæði fyrir yfirhandar- og veltiköst
  • Flotlína með „stealth colored“ haus fyrir stygga fiska
  • Hönnuð sérstaklega fyrir púpu og þurrfluguveiði
  • Skærlitað „merki“ sem sýnir endann á hausnum svo maður viti hvar best er að byrja næsta kast

Hvað skiptir máli?

Þá förum við aðeins dýpra í málin og skoðum hvað það er á línum almennt sem skiptir máli fyrir það hvernig þær virka og á sama tíma hvaða „fítusar“ eru á Amplitude Smooth Trout Strategic línunni.

Lengdin á hausnum á Trout Strategic

Fyrsta sem ber að nefna er að Amplitude Smooth Trout Strategic fæst með 8,5m, 10,5m og 12,5m hauslengd. Hausinn er í rauninni „hjartað“ í línunni og hvernig hausinn er uppbyggður stjórnar í raun flestu sem skiptir máli. Hausinn er þyngsti hluti línunnar og það er hann sem hleður stöngina. Þyngd og lengd haussins er svo hannaður fyrir mismunandi stangir, aðferðir og veiðistíl. Það sem skiptir máli hér er að hugsa vel um hvernig þú ætlar að nota línuna og við hvaða aðstæður. Tökum sem dæmi:

Þú ætlar að nota línuna í andstreymispúpuveiði. Segjum að þú sért vön/vanur að nota 2-3 púpur, tökuvara, með langan taum og jafnvel auka hagl á línunni. OK – viðurkenni að það eru frekar „extreme“ aðstæður en við skulum samt aðeins skoða það. Með svoleiðis „rig“ viltu reyna að forðast að þurfa að taka falsköst í lengstu lög. Allt þetta auka dót á taumnum fer í algjöra flækju ef þú þarft að vera að falsakasta þessu mikið. Helst viltu leyfa þessu bara að leka niður fyrir þig og „pikka“ línuna upp fyrir aftan þig og leggja hana bara í einu „veltikasti“ upp fyrir þig. Þá er mjög gott að hausinn sé stuttur EN að sama skapi skiptir „taperinn“ þá miklu máli.

Fram“taperinn“ á Trout Strategic

Íslenska orðið á þessu er í rauninni „frammjókkun“. Flestir hafa örugglega heyrt um kóníska tauma sem eru einmitt frammjókkandi taumar. Þessi frammjókkun hefur áhrif á það hvernig línan/taumurinn/flugan leggst/lendir á vatninu. Ef fram“taperinn“ er langur og aflíðandi þá er línan hönnuð fyrir „mýkri“ lendingu en ef hann er stuttur og brattur þá leggst línan oft með aðeins meiri látum en hjálpar til við að kasta stærri flugum lengra. Það segir sig í rauninni sjálft að við erum ekkert endilega að pæla mikið í að stórar, þungar straumflugur lendi eitthvað mjúklega þar sem þær lenda hvort sem er með smá látum. En ef við ætlum að leggja pínulitla þurrflugu í logni þá þurfum við ákveðinn framtaper til að flugan og línan lendi mjúklega.

Trout strategic er með frekar langan framtaper sem hjálpar til við að lenda línunni mjúklega en líka að ná að snúa löngum taumum með alls konar dóti á taumnum.

Fjölhæfni Trout Strategic

Það skemmtilegasta (að okkar mati) við Trout Strategic er að það er hægt að fá hana með 8,5m, 10,5m og 12,5 metra haus sem hentar mismunandi kösturum og mismunandi aðstæðum. Ef þú ert ný/r í fluguköstum þá myndum við alltaf mæla með að taka 8,5m hausinn. Ástæðan er sú að ef þú hefur ekki mikla reynslu af því að vinna með mjög langa línu og löng köst þá mun stuttur hausinn hjálpa þér að hlaða stöngina hratt með frekar stutta línu „úti“ og þú þarft ekki að falskasta mikið. Að sama skapi, ef þú ert reynslumikill kastari en veiðir aðallega í litlum ám og lækjum þá hentar stutti hausinn vel fyrir stuttu köstin. Eftir því sem reynslan verður meiri og þú ræður við lengri línu og/eða þú veiðir í stærri ám þá er 10,5m þessi fullkomni meðalvegur. Svo er 12,5m hausinn fyrir þá alhörðustu sem eru t.d. að veiða í Laxá í Laxárdal eða Mývatnssveit. Bara sem dæmi.

Þó línan heiti Trout Strategic þá er ekki þar með sagt að hún ráði ekki við eitthvað annað. Segjum að þú sért mest í andstreymisveiði í litlum ám en ferð í einstaka laxatúr í litlum ám með mest megnis smálaxi þá er Trout Strategic geggjuð fyrir smáflugur og hitch svo dæmi séu tekin. Sérstaklega gáð fyrir erfiðar aðstæður, sól og lítið vatn þar sem hún leggst mjúklega og „presenterar“ litlar flugur einstaklega vel.

Niðurstöður

Við erum sérstaklega spennt fyrir komu þessarar nýju línu og hlökkum til að heyra álit þeirra sem nota hana í sumar. Það eru mismunandi línuþyngdir í boði fyrir mismunandi lengd á haus. Hauslengd 8,5m fæst í línuþyngd #3-8 og það sama gildir um 10,5m en 12,5m hausinn fæst aðeins í línuþyngdum #4-#6. Kíkið endilega við í Mörkina 6 og kynnið ykkur þessa nýju línu frá Scientific Anglers. Opið alla virka daga frá 10-18 og svo frá 11 – 15 á laugardögum.

Scroll to Top